Sigrún Jenný Barðadóttir
Íslensk menningarpólitík
        <name>Sigrún Jenný</name>
Sequence festival 2011
        <name>Sigrún Jenný</name>
Hugleiðingar um David Byrnes "Moral Dilemmas" á Listahátíð, áhrifamáttur fjölmiðla og "dumbing down"
        <name>Sigrún Jenný</name>
        <![CDATA[Stórstjarnan David Byrne fyrrum meðlimur hljómsveitarinnar Talking Heads var með eftirminnilega innsetningu á Listahátíð í ár.  "Moral Dilemmas" eða siðferðisklípa á íslensku er verk sem samanstendur af stærðar plaggötum á upplýsingastöndum Reykjavíkurborgar og innihalda valspurningar.  Spurningarnar koma áhorfanda óþægilega á óvart og ganga svo langt að koma honum í nokkurs konar siðferðisklípu.  Hann fær ónot í magann, og uplifar einhvers konar siðferðisklípu.  Hvað er rétt og rangt að gera við tilteknar aðstæður?  Eitt verkið er málað í sterkum gulum lit.  Á ofanverðri mynd eru bláar öryggismyndavélar og fyrir neðan stendur skrifað rauðum stöfum "Bróðir þinn er bankamaður sem hefur hagnast á hruninu.  Hann býður þér hluta af ágóðanum"  Þú  A) Segir yfirvöldum frá honum B) Gefur hluta þinn til góðgerðamála C) Hafnar gjöfinni en þegir.  Ekkert eitt svar er lausn við spurningunni.  Ekkert svar er rétt eða rangt.  David Byrne hittir naglann á höfuðið með pólitískri ádeilu.  Í okkar litla samfélagi þar sem svo til allir þekkja alla þá þekkjum við eflaust einhverja sem hagnast hafa á hruninu hvort sem það er bróðir okkar, systir, mágkona, mágur, nágranni eða vinur vina okkar.  
Þrátt fyrir að Siðferðisklípa vísi óhikað í samfélagsumræðu síðustu mánuða á Íslandi ætla ég ekki að fara út í þá sauma hér en sný mér frekar að tæki listamannsins, auglýsingamiðlinum.  Barbara Kruger er listamaður sem notar einnig auglýsingamiðilinn sem tæki við listsköpun og er hún einn sá þekktasti.  Verk hennar einkennast af áhrifamiklum texta sem ná að fanga áhorfandann óvænt sem reynir svo að komast til botns í því hvað listamaðurinn er nákvæmlega að segja.  Þannig koma bæði David Byrne og Barbara Kruger af stað vangaveltum um áhrifamátt auglýsinga og fjölmiðla.  
Stjórnvöld í nýfrjálshyggju samfélögum dagsins í dag hafa í auknum mæli fært völd yfir fjölmiðlum á frjálsan markað og takmarkað þannig áhrifamátt sinn og vald til að hafa áhrif á og leiða menningu sem mótar sjálfsmynd almennra borgara.  Hugleiðingar um "dumbing down" er ágætis viðvörun um hvað getur gerst ef gengið er of langt eða þegar stjórnvöld láta menninguna afskiptalausa. 
"Dumbing down" samfélagsþróun hefur gengið hvað lengst í löndum þar sem óheft markaðshyggja hefur ráðið ríkjum og afskiptaleysi stjórnvalda af markaði og menningu er viðtekin hefð.  Bandaríkin eru eitt dæmi um slíka þróun en einnig Ítalía, sér í lagi í tíð Berlusconi.  Mynd Morgan Spurlocks er merkileg í þessu samhengi og er ádeila á Mcdonaldsvæðinguna í Bandaríkjunum.  Í heilan mánuð borðar Spurlock ekkert annað en Mcdonalds hamborgara.  Varðandi "dumbing down" menningu á Ítalíu er heimildarmyndin Videocracy eftir sænsk-ítalska Erik Gandini ómissandi.  Mynd um menningu og fjölmiðla Ítalíu en þar er Berlusconi forsætisráðherra Ítalíu svo til einráður um fjölmiðlana.
Siðferðisklípa David Byrne er eftirminnilegt verk.  Það vekur upp áleitnar spurningar sem eiga fullt erindi í samfélagsumræðu dagsins í dag.          ]]>
Besti flokkurinn - ný hugmyndafræði 
        <name>Sigrún Jenný</name>
        <![CDATA[Sigur Besta flokksins í borgarstjórnakosningunum er einstakur og mætti túlka á marga vegu.  Til dæmis sem gjörning listamannsins sjálfs Jóns Gnarrs og er hann þá orðinn einn af mínum uppáhaldslistamönnum.  Að flétta slíkan gjörning inn í stofnanakerfið er með eindæmum og þá má sjá fyrir sér að hægt sé að gera slíkt á fleiri sviðum þar sem pólitíkin og aðferðir eru staðnaðar.  Slíkir atburðir staðfesta enn og aftur hugmyndir Adorno og fleiri merkra fræðimanna sem töldu að listin (grundvallar-hugmyndafræði menningar og lista sem er þroski mannlegra eiginleika og almannaheill) væri nauðsynlegt mótvægi nýfrjálshyggjunnar.  
Theodor W. Adorno (1903-69) var einn mikilvægasti heimspekingur og samfélags gagnrýnandi Þýskalands eftir síðari heimstyrjöldina.  Rannsóknir Adorno voru þverfaglegar og tilheyrði hann hópi Frankfurtarskólans.  Hann var frumkvöððull fyrstu kynslóðar gagnrýnna fræða sem gagnrýndu vestrænt neyslusamfélag og þar með tæknihyggju.
Í grein Adorno "Menning og stjórnun" fjallar Adorno um samband menningar og stjórnunar og meðal annars nauðsyn þess að við stjórnun menningar séu sérfræðingar á sviði menningar.
"The relation between administration and expert is not only a matter of necessity, but it is a virtue as well.  It opens a perspective for the protection of cultural matters from the realm of control by the market, which today unhesitatingly mutilates culture" (Adorno, The Culture Industry, bls 129)
"the spontaneous consciousness, not yet totally in the grips of reification, is still in a posititon to alter the function of the institution within which this consciousness expresses itself.  For the present, within liberal-democratic order, the individual still has sufficient freedom within the institution and with its help to make a modest contribution to its correction" (Adorno, The Culture Industry, bls 131). 
Besti flokkurinn sýndi það og sannaði að einstaklingar geta haft áhrif á stofnanakerfið og ýtt af stað breytingum.  Jón Gnarr er sjálfmenntaður listamaður og fólkið í flokknum eru flestir úr röðum listamanna.  Þeir eru því fulltrúar menningar og lista eða þeirra þátta sem hvað mest hafa gleymst í neyslukapphlaupi síðustu ára.  Þeir eru fulltrúar þeirra grundvallargilda sem varða þroska mannlegra eiginleika og heilla almennings.  Það er því fagnaðarefni að í lykilstöður innan samfélagsins komi til með að sitja fólk sem skilur að gilliboð tæknihyggju á kostnað menningar innan stjórnkerfisins er liðinn tími, vonandi.   