Ideal veröld

| 1 aths.
Veröldin er líkt og tónverk sem byggist á hlutföllum og töktum, smáum sem stórum. Hin fornu trúarbrögð, jarðartrúin, byggðist á athöfnum endurfæðingar þar sem hlutföllin endurskapa sig í sífellu. Heimsmyndirnar sem markaðar voru í land við helgun lands, voru markaðar samkvæmt þessum hlutföllum. Hlutföllin og takturinn eru byggð inn í mann fólkið líkt og taktur hjartans eða lengd dags og nætur, heimsmyndirnar eru því allar eins í veröldinni. Við Íslendingar þurfum að segja þessa frétt því menningarsvæði og höfuðborgir um allan heim eru byggð á afmörkuðum landsvæðum þessarar tegundar og eru flestar borgir heimsins því skipulagðar samkvæmt æfa fornum heimsmyndum sem Einar heitinn Pálsson fræðimaður uppgötvaði í launmáli Njálu. Komin var mörg þúsund ára hefð fyrir heiðnum trúarbrögðum við upphaf Íslandsbyggðar. Má því ætla að landnámsmenn hafi gengið fumlaust til verks þegar þeir mældu á Rangárvöllum síðustu heimsmynd af þessu tagi í veraldarsögunni. Við mælingu heimsmyndar­innar á Rangárvöllum var þar með bundinn endi á mörg þúsund ára þróunarsögu helgisiða mannkynsins, því lönd og eyjar sem numin voru eftir árið þúsund voru helguð Kristi hinnar nýju trúar. 

1 aths.

Skrifaðu athugasemd

Efnisflokkar

  • Fræðileg skrif
  • Gagnrýni
  • Hönnun og umhverfi
  • Kvikmyndablogg
  • Ljósmyndablogg
  • Opnanir og viðburðir
  • Tengingar og krækjur
  • Viðtöl

Vefsíður

Keyrt á Movable Type 5.01

Um þennan pistil

Á þessari síðu er einn pistill. Höf.: Pétur Halldórsson birtur þann 20. janúar 2010.

Mordur gigja var næsti pistill á undan í þessu listbloggi.

Leita að nýlegu efni í forsíðuefni eða leita frekar í: yfirliti efnis að öllu efni.