Ljósmyndaserían mín Móment með John Coyne opnaði í Kamesinu, s.l. föstudag. Sýningin er sú fyrsta í nýju sýningarrými Borgarbókasafns Reykjavíkur v. Tryggvagötu, á 5 hæð innaf tón- og mynddeild.
Ljósmyndaserían Móment með John Coyne var unnin árið 2009. John Coyne er myndlistarmaður búsettur í Manchester og var verkið upphaflega unnið fyrir sýningu í íbúð hans þar. Myndaserían er þó jafnframt sjálfstætt verk þar sem unnið er með mynd og ímynd af john Coyne og hann því frekar uppspretta verksins en efniviðurinn, eða hvorutveggja.
Ég hefur unnið með ljósmyndir frá árinu 2004 og vinn auk þess málverk samhliða þeim. Er ýmist að vinna með efnivið minninga, daglegs lífs eða hvorutveggja. Þar sem fléttast saman persónulegt líf, þjóðfélagsumhverfi, menning, pólitík, tilfinningar, hugsanir o.fl. Í vinnuferlinu skapar augnablikið verkið, tiltekið augnablik umbreytist, bæði í mynd og hugmyndalega og oft er unnið aftur og aftur með sömu ljósmynd þannig að verkin verða flóknari og margræðnari. Út frá þessu vinnuferli hafa orðið til nokkrar mómentseríur síðustu ár. Sjá nánar á heimasíðu minni http://www.simnet.is/egs62/arterna/artlink.htm

Skrifaðu athugasemd