Ég sýni málverk, ljósmyndir og innsetningu í sal grafíkfélags Íslands. Með sýningunni er ég að takast á við líðandi stund, þjóðfélagsástand og persónulegt líf. Hér heldur ég áfram tilraunum mínum með samþættingu ólíkra listmiðla og viðfangsefnis sem ég hef verið að vinna að frá árinu 2004 þar sem andartakið er bæði vinnuferli verkanna og viðfangsefni.
Sjá frekari upplýsingar á heimasíðu grafíkfélagsins
http://www.islenskgrafik.is/index.php?lang=is


frá sýningu í SÍM-húsinu

| Engar aths. | Engar vísanir

IMG_0042-1.jpg

IMG_0072-1.jpg

IMG_0056-1.jpg

IMG_0056-2.jpg

IMG_0058-1.jpg

Erna G.S SÍMari maímánaðar

| Engar aths. | Engar vísanir

IMG_0037-1.jpgÍ SÍM húsinu sýni ég hluta úr tveimur ljósmyndaröðum. Sú fyrri "Andartak og minningar" er frá árinu 2004 og er enn í vinnslu. Verkið hefur ekki birst í heild sinni en hluti þess hefur verið sýndur víða á sýningum hér heima og erlendis. Seinni ljósmyndaröðin "Tilviljanakennd augnablik" var unnin árið 2009 og var hluti hennar birtur reglulega á listabloggi ArtReview,
http://www.artreview.com/profile/ErnaGS

Ég hef verið að vinna með ljósmyndir frá árinu 2004, en vinn og sýni málverk jafnhliða þeim. Ég er vinn ýmist með efnivið minninga, daglegs lífs eða hvorutveggja. Þar sem fléttast saman persónulegt líf, þjóðfélagsumhverfi, menning, pólitík, tilfinningar, hugsanir o.fl. Augnablikið er mér hugleikið þar sem vinnuferlið sjálft skapar verkið. Tiltekið augnablik umbreytist, bæði í mynd og hugmyndalega og oft er unnið aftur og aftur með sömu ljósmynd þannig að verkin verða margræðari.

Sýningin stendur frá 5.- 26. maí, Hafnarstræti 16, Reykjavík.
Opnunartími er mán-fös 10.00-16.00
http://sim.is/Index/Islenska/Frettir/Syningarigangi/ 

Móment með John Coyne

| Engar aths. | Engar vísanir

Ljósmyndaserían mín Móment með John Coyne opnaði í Kamesinu, s.l. föstudag. Sýningin er sú fyrsta í nýju sýningarrými Borgarbókasafns Reykjavíkur v. Tryggvagötu, á 5 hæð innaf tón- og mynddeild.

Ljósmyndaserían Móment með John Coyne var unnin árið 2009. John Coyne er myndlistarmaður búsettur í Manchester og var verkið upphaflega unnið fyrir sýningu í íbúð hans þar. Myndaserían er þó jafnframt sjálfstætt verk þar sem unnið er með mynd og ímynd af john Coyne og hann því frekar uppspretta verksins en efniviðurinn, eða hvorutveggja.

Ég hefur unnið með ljósmyndir frá árinu 2004 og vinn auk þess málverk samhliða þeim. Er ýmist að vinna með efnivið minninga, daglegs lífs eða hvorutveggja. Þar sem fléttast saman persónulegt líf, þjóðfélagsumhverfi, menning, pólitík, tilfinningar, hugsanir o.fl. Í vinnuferlinu skapar augnablikið verkið, tiltekið augnablik umbreytist, bæði í mynd og hugmyndalega og oft er unnið aftur og aftur með sömu ljósmynd þannig að verkin verða flóknari og margræðnari. Út frá þessu vinnuferli hafa orðið til nokkrar mómentseríur síðustu ár. Sjá nánar á heimasíðu minni http://www.simnet.is/egs62/arterna/artlink.htm

hér er ég

| Engar aths. | Engar vísanir