Main

28. júní, 2009

Feneyjar 2009, fjórir viðburðir, heimspeki og (kannski) túlkun

IS_Fen_2009_01_400.jpgÍ Feneyjum fer fram stór og mikil listasýning á tveggja ára fresti, svonefndur myndlistartvíæringur. Þetta árið sýnir Ragnar Kjartanson þar, einn íslendinga, í skála á vegum Íslands. Sýningin er um margt áhugaverð og viðbrögð við henni að sama skapi. Hugleiðingar þær sem hér fara á eftir eru sprottnar upp úr viðkynningu af verkum Ragnars á sýningunni og viðleitni til að setja þau verk í víðara samhengi samtímalistar.

Lesa meir/Continue "Feneyjar 2009, fjórir viðburðir, heimspeki og (kannski) túlkun" »

4. febrúar, 2009

Bil
Tengsl myndar, moldar og raunveruleika í Málverkum, teikningum, ljósmyndum Kristjáns Steingríms í Listasafni ASÍ

Kristjan_Steingr01_nal_min.jpgÁ nýliðinni sýningu Kristjáns Steingríms í Listasafni ASÍ snerist myndefnið um mold og skrúðgarða, eða nánar um mold úr skrúðgörðum. Sýningin var í mörgum hlutum, á henni voru teikningar af ýmsum gerðum, með tússi á pappír og rissaðar beint á vegginn auk risastórs veggmálverks í Ásmundarsal miðjum. Þungamiðja sýningarinnar, að mínu mati, og tilefni þessara hugleiðinga, eru tvær myndraðir þar sem moldin og skrúðgarðahugmyndin tengist í raun. 

Lesa meir/Continue "Bil
Tengsl myndar, moldar og raunveruleika í Málverkum, teikningum, ljósmyndum Kristjáns Steingríms í Listasafni ASÍ" »

1. september, 2008

Kennsl Bjarkar Guðnadóttur í Suðsuðvestur

Kennsl_01.JPGEfni, staflað á gólf og veggi. Myndir sem búið er að fjölfalda, einni gert hærra undir höfuð, signeruð í ramma, hinar í fjölda lita raðað í mynd á vegg, dúkristur, einföld barnaleg teikningin rímar við áráttukennda fjölföldunina, þarf að prófa alla möguleika, kannski er svarið einhversstaðar - þumall lítillar handar snertir þumal stórrar handar. Barnsskyrta, fagurlega gerð úr sama efni, lérefti, og fyllir salinn. Í innrými er búið að gera einföld þrykk úr pappaspjöldum sem greinilega eru skorin eftir sníðahlutunum sem skyrtan er úr. Í texta er okkur sagt frá því að í Skáldskaparmálum Aristótelesar sé það geigvænleg reynsla þegar mannveran kemst að uppruna sínum. Þá, loksins, fara brotin að raðast saman, þá fer hugsunin af stað, þá fer sýning úr að því er virðist handahófskenndum hlutum að gerast, einhverskonar heild að verða til.

Lesa meir/Continue "Kennsl Bjarkar Guðnadóttur í Suðsuðvestur" »

11. apríl, 2007

Pourquoi?
hugleiðing um jaðaráhrif á sýningu Pierre Huyghe í Hafnarhúsi

Pierre Huyghe er myndlistarmaður sem iðulega hefur unnið með áhugaverðar innsetningar og performansa sem á skemmtilegan og djarfan hátt eru settar í samspil við menningu og aðstæður á þeim stað sem verkin eru sýnd á. Sýning hans hér á landi var því tilhlökkunarefni, sér í lagi eftir lestur fréttatilkynningar Listasafns Reykjavíkur:

Sýning Pierre Huyghe í Listasafni Reykjavíkur ber yfirskriftina Í BEINNI - VIÐBURÐUR VERÐUR SÝNING og vísar til beinnar og milliliðalausrar upplifunar áhorfandans við verkin á sýningunni. Í verkum sínum vill Huyghe beina sjónum að þeim stað sem hann vinnur á hverju sinni. Á sýningu Listasafns Reykjavíkur endurspeglast þetta meðal annars í innsetningu þar sem málverk og höggmyndir úr eigu Listasafns Reykjavíkur eru í forgrunni en öðlast aðra tilvistarvídd með áhrifamiklu sjónarspili ljóss og hljóðs.

Því miður var raunin nokkuð önnur en væntingar stóðu til, og má segja að á sýningunni hafi íslenskum áhorfendum einungis verið færður reykurinn af réttunum en ekki fengið að njóta þeirrar upplifunar sem sýningar Huyghe eru yfirleitt. Því má velta fyrir sér hvort þetta er einstakt dæmi um að listamanninum takist ekki vel upp, eða hvort hér sé um að ræða áhrif frá ‘jaðarstöðu’ listastofnana sem ekki eru í þungamiðju menningarinnar, að listamanninum hafi ekki þótt þess virði að leggja í alvöru sýningu hér á landi.

Lesa meir/Continue "Pourquoi?
hugleiðing um jaðaráhrif á sýningu Pierre Huyghe í Hafnarhúsi" »

8. maí, 2006

Steingrímur

Þegar maður gengur inn í sýningu Steingríms Eyfjörðs “Bein í Skriðu”  í 101 Gallerý þá úir og grúir af forvitnilegum hlutum  og myndum sem kítla strax ímyndunarafl áhorfandans og maður byrjað ósjálfrátt að leita að sögunni í myndlistinni.  Þetta hefur verið eitt af einkennum myndlistar Steingríms í fjölda ára, það að fá áhorfandann til að staldra við og hella sér út í ævintýraheiminn sem hann setur á svið fyrir okkur.  

Á þessari sýningu sýnir Steingrímur, blekteikningar, styttur, málaða steina, skilti og spreyjaðar myndir, sem allt saman myndar eina innsetningu.

Lesa meir/Continue "Steingrímur" »

1. apríl, 2006

Eygló Harðardóttir í lit í Suðsuðvestur

EygloHardar_icon.jpg Laugardaginn 1. apríl opnaði Eygló Harðardóttir (FUGL 3) sýningu í Suðsuðvestur. Sýningin er fjölskrúðug og mæta áhorandanum óræðar ljósmyndir, kvikmynd með hátölurum, litafletir og málaðir fletir; allt í samspili við rýmið í litla gamla húsinu sem hýsir Suðsuðvestur í miðbænum í Keflavík.

Lesa meir/Continue "Eygló Harðardóttir í lit í Suðsuðvestur" »

5. mars, 2006

Nærvera og fjarvera: Sýning Söru Björnsdóttur í Kling og Bang [gallerí]

SaraBjorns_icon.jpg Laugardaginn 4. mars opnaði Sara Björnsdóttir (FUGL 14) sýningu í Kling og Bang [gallerí]. Sýningin er í kjallara sýningarsalarins og lætur lítið yfir sér í fyrstu, en við nánari viðkynningu hefur myrkrið í kjallaranum, ljósin á bak við blaktandi tjöld og hávaðinn í því sem virðist vera mótorhjól skemmtileg áhrif á áhorfandann.

Lesa meir/Continue "Nærvera og fjarvera: Sýning Söru Björnsdóttur í Kling og Bang [gallerí]" »

12. febrúar, 2006

Stillansar Annanna í Nýló

Onnusyning_icon.jpg Laugardaginn 12. febrúar opnuðu Anna Guðjónsdóttir, Anna Hallin (FUGL 04) og Anna Líndal (FUGL 19) sýningu í Nýlo. Á sýningunni unnu þær þétt saman og byggðu sameiginlegan strúktúr í rýminu með stillansa sem þema sem skapaði öflugan bakgrunn fyrir verk þeirra sjálfra.

Lesa meir/Continue "Stillansar Annanna í Nýló" »